Um Golfklúbb Siglufjarðar

Golfklúbbur Siglufjarðar (GKS) var stofnaður 19. júlí 1970.

Helstu frumkvöðlar að stofnun hans voru Gissur Ó. Erlingssson og Hafliði Guðmundsson. Klúbburinn kom sér upp litlum 6 holu velli á stofnárinu. Hann var fljótlega stækkaður í 9 holur en styttur aftur í 6 holur um 1987.

Árið 1997 var Hólsvöllur tekinn í notkun.

Árið 2017 þá var núverandi völlur tekinn í notkun. Hann heitir SiglóGolf.

Fyrsta opna mót klúbbsins fór fram sumarið 1971 og fyrsta meistaramótið í karlaflokki árið 1977.

Óvíst er hvort mótið var haldið árin 1980 – 1983 og árin 1987 – 1993 var ekki keppt vegna vallaraðstæðna.

Hin síðari ár hefur móthald klúbbsins eflst mjög.

[Heimild: Alfræðibókin um golf A-Ö, Dr. Ingimar Jónsson (2003)]